Um okkur.
Viltu að barnið þitt byggi upp sjálfstraust og sjálfsaga, efli einbeitingu sína og læri sjálfsvörn í öruggu og hvetjandi umhverfi? Hjá Mudo sameinum við fjölbreyttar og uppbyggilegar Taekwondo-æfingar þar sem gleði og jákvæð upplifun eru í forgrunni. Um leið leggjum við áherslu á grunngildi Taekwondo, svo sem virðingu, kurteisi, þrautseigju, sjálfsstjórn og ábyrgð. Nemendur læra að setja sér markmið, takast á við áskoranir og eiga góð og uppbyggileg samskipti við aðra – færni sem nýtist þeim jafnt innan æfingasalarins sem í daglegu lífi.
Að stunda Taekwondo felur í sér að þjálfa upp það þrek, sjálfstraust og viljastyrk sem þarf til að sigrast á þeim erfiðleikum sem maður stendur frammi fyrir hverju sinni. Taekwondo felur í sér alla þætti þess sem nefnt er „holl hreyfing“. Gerðar eru styrktar- og liðleikaæfingar fyrir alla vöðva líkamans auk þess sem jafnvægi og samhæfing eru æfð.

